Úrslit landskeppni GFF ljós!

Í lok maí fór fram Landskeppni Grænna Frumkvöðla Framtíðar og voru úrslitin kynnt á erindi Matís á Nýsköpunarvikunni. Þar kepptu skólarnir þrír, Nesskóli, Grunnskóli Bolungarvíkur og Árskóli, til úrslita. Hver skóli sendi inn myndband þar sem þeir útskýrðu sínar lausnir á umhverfisáskorunum í sinni heimabyggð. Keppnin var hnífjöfn en á endanum var það Grunnskóli Bolungarvíkur sem bar sigur úr býtum.

Myndböndin þrjú sem kepptu til úrslita!
Sigurliðið!

Grunnskóli Bolungarvíkur glímdi við áskorunina

„Hvernig er hægt að nýta úrgang frá fiskeldi betur “

og lausnin sem vann heitir:

“Að nýta úrgang frá fiskeldi á sjálfbæran hátt”

Hér er sú endurgjöf sem liðið fékk frá dómnefndinni:

“Þið eruð hugvitssöm og lausnamiðuð. Þið komuð auga á umhverfisvandamál sem skapast vegna fiskeldis í sjó og leituðuð lausna. Það var frábært að fá að sjá skítinn sem safnast hefur fyrir, en það sjónarhorn fær almenningur yfirleitt ekki. Ykkar verkefni gengur út á að breyta úrgangi og botnfalli í auðlind sem nýtist, og gæti því komið bæði náttúru og sjávarútvegsfyrirtækjum að gagni. Við hvetjum ykkur til að vinna lausnina áfram og hafa í huga mikilvægi líffræðilegs fjölbreytileika í vistkerfum í sjónum, en eldi í sjó getur skaðað hann sé ekki að gætt.“

Fengin var utanaðkomandi dómnefnd og í henni sátu:

  • Lenya Rún Taha Karim varaþingmaður Pírata og lögfræðinemi
  • Margrét Hugadóttir vefstjóri og verkefnastjóri hjá Landvernd
  • Þóra Valsdóttir verkefnastjóri hjá Matís

Allir hóparnir munu svo koma til með að fá senda endurgjöf frá dómurunum þar sem þeir eru m.a. hvattir til að halda áfram á þessari braut og reyna að koma sínum lausnum áfram.

Nú þegar fyrsta ár Grænna Frumkvöðla Framtíðar er á lokametrunum er ekki annað hægt en að líta yfir farinn veg. Verkefnið hefur gengið framar vonum okkar og við getum ekki beðið eftir að sjá hvað er næst hjá Grænum Frumkvöðlum Framtíðar!

Leave a Comment

Your email address will not be published. Required fields are marked *